ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 3m/s E

Skemmtistaðir beintengdir

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:06 › 14. ágúst 2008

„Þetta er tilraunaverkefni þar sem við prófum þetta og athugum hvort þetta geri sig,“ segir Stefán Laurance Stefánsson, einn eigandi Terr fjarskipta, en hann ásamt félögum sínum ætlar að koma á talstöðvarsambandi við alla skemmtistaði í miðborg Reykjavíkur næstu tvær helgar. Það gera þeir með því að láta skemmtistöðunum í té ákveðna fjarskiptabylgjulengd sem er upprunalega úthlutað af lögreglunni. Þannig geta dyraverðir verið í beinum samskiptum bæði við aðra dyraverði í miðborginni sem og lögregluna.

„Þetta eykur bæði öryggi gesta á skemmtistöðum sem og dyravarða og að auki styttir þetta útkallstíma lögreglunnar,“ segir Stefán og bætir við að þörf sé á enda ekki nema þrjár vikur liðnar frá því að dyravörður var stunginn af gesti á skemmtistað í miðborginni að sögn Stefáns. Sjálfur er hann fylgjandi því að dyraverðir gangi í hnífavestum líkt og lögreglan og tekur sem dæmi að aðeins á einum mánuði hafi þrjár hnífaárásir átt sér stað í miðbænum.

Stefán og félagar hafa starfrækt fyrirtækið Terr fjarskipti í nokkra mánuði og hefur gefið góða raun að sögn skemmtistaðaeigenda sem tala um byltingu.

Félagarnir í Terr fjarskiptum voru aftur á móti gagnrýndir nokkuð harðlega af Geir Jóni Þórissyni, yfirlögregluþjóni á höfuðborgarsvæðinu, þar sem hann sakaði þá félaga um að seilast heldur langt inn á valdsvið lögreglunnar. Sá ágreiningur er leystur að sögn Stefáns en þeir breyttu merkingum á svokölluðum neyðarbíl sem þeir hafa til umráða en hann þótti heldur líkur bifreiðum lögreglunnar.

„Núna geta gestir miðborgarinnar skemmt sér áhyggjulausir,“ segir Stefán en skemmtistaðirnir verða samtengdir um næstu helgi og síðan á menningarnótt.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.