Geir Sigurður Gíslason, 17 ára gamall Hafnfirðingur, á von á kæru frá lögreglumanni sem hann kitlaði með sogröri á meðan hann valdi sér grænmeti á Subway-samloku á bensínstöð N1 við Hringbraut.
„Ég var þarna með vinum mínum sem voru að borða Subway um klukkan eitt eftir miðnætti á fimmtudaginn. Þar var lögreglumaður að kaupa sér Subway. Ég var búinn að setja saman sjö sogrör og datt í hug að grínast fyrir vinkonu mína sem var að afgreiða lögguna með því að kitla hann í eyrað með rörinu. Ég var í nokkurri fjarlægð og kom lauflétt við eyrað á honum. Hann bandaði frá sér eins og hann væri að slá burt flugu en þegar hann sneri sér við sá hann mig með rörið. Þá kom hann til mín, tók af mér rörið, braut það saman og bað um skilríki.“
Geir var svo færður í lögreglubíl þar sem lögreglumaðurinn tjáði honum að hann hygðist kæra hann fyrir áreiti. „Síðan hringdi hann í móður mína og sagði henni það sama. Ég margbað hann auðmjúklega afsökunar en hann sagði að þetta yrði ekki fyrirgefið. Ég var keyrandi og bláedrú,“ segir Geir sem þótti gríninu tekið fullalvarlega.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
