Gengið var frá kaupum Útgáfufélagsins Birtíngs ehf. á DV og dv.is af Dagblaðinu Vísi útgáfufélagi ehf. í dag. Birtíngur rekur fyrir öfluga tímaritaútgáfu svo sem vikublöðin Séð og Heyrt og Vikuna, mánaðrritin Gestgjafann, Golfblaðið, Hús og híbýli, Mannlíf, Nýtt líf, Skakka turninn og Söguna alla.
Elín G. Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Birtíngs, hefur síðan um áramót stjórnað báðum útgáfufélögunum. Hún segist fagna þessum kaupum.
,,DV hefur vaxið mjög hratt og er í dag góð fjárfesting. Það hefur verið unnið markvisst að þessu frá því um áramót og nú er þetta í höfn. Þetta er afskaplega góð niðurstaða," segir Elín.
Með kaupunum yfirtekur Birtíngur alla starfssamninga DV. Elín segir að DV verði gefið út með sama hætti og undanfarið. Hún segir að mikil hagræðing náist með því að reka DV samhliða tímaritunum. Stjórnarformaður Birtíngs er Hreinn Loftsson hæstaréttarlögmaður.





Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir
Náðu að flýja meðan heimilið logaði