ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Uppsagnir á fasteignasölu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:53 › 11. ágúst 2008

„Bankarnir eru lokaðir og þetta er sá ískaldi raunveruleiki sem við stöndum frammi fyrir,“ segir Karl Georg Sigurbjörnsson hæstaréttarlögmaður og annar tveggja eigenda fasteignasölunnar Miðborgar. Fyrirtækið hefur nú sagt upp þremur af átta starfsmönnum.

„Við verðum bara að sníða okkur stakk eftir vexti. Það er svo einfalt. Það vantar peninga til að fjármagna eignirnar. Kerfið er alveg frosið og bankarnir lána ekki krónu. Við höfum horft upp á 80 til 90 prósenta samdrátt á fasteignamarkaði,“ segir Karl. Hann á ekki von á því að þurfa að segja upp fleiri starfsmönnum. Hann vonast til þess að ástandið glæðist með haustinu en bendir á að ríkisstjórnin hafi lítið sem ekkert gert til að bæta úr ástandinu.

Hann segir enn fremur að stærst sé vandamálið hvað stórar eignir varðar. Íbúðalánasjóður láni vissa upphæð en ekki nærri nóg til að stórar eignir seljist. Þrátt fyrir uppsagnir hjá eigin fyrirtæki segist Karl hafa mestar áhyggjur af fólki sem hafi freistast til að taka lán í erlendri mynt. „Þeir sem tóku erlend lán upp á 30 til 40 milljónir sitja verst í súpunni. Lánin hafa hækkað um allt að helming og eru miklu hærri en verðgildi húsanna,“ segir Karl að lokum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.