Tökur eru hafnar á íslensku hryllingsmyndinni Reykjavik Whale Watchers Massacre. Myndin er í leikstjórn Júlíusar Kemp en hér er á ferðinni sannkölluð slasher kvikmynd og sú fyrsta sinnar tegundar sem gerð er á Íslandi.
Með aðalhlutverk í myndinni fer sjálfur Gunnar Hansen, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt sem Leather Face í kvikmyndinni The Texas Chainsaw Massaacre sem er ein frægasta kvikmynd hryllingsmyndasögunnar.
Gunnar er búsettur í Bandaríkjunum en er nú staddur á Íslandi við tökur á Reykjavik Whale Whatchers Massacre.„Hann er kominn til landsins og skellti sér meðal annars á Eric Clapton tónleikana á föstudaginn og skemmti sér gríðarlega vel. Við reiknum með því að tökur á myndinni standi yfir í fjörutíu daga og hún verður sýnd næsta sumar,“ segir Ingvar Þórðarson sem framleiðir kvikmyndina ásamt Júlíusi Kemp.
Gunnar Hansson er þó ekki eini maðurinn sem þurfti að fljúga sérstaklega til Íslands til að vera við tökur á myndinni en athafnamaðurinn Helgi Björnsson sem búsettur í Berlín stóran hluta árs leikur einnig í myndinni og er því staddur á Íslandi um þessar mundir.
Sjón skirfaði handritið að Reykjavik Whale Whatchers Massacre en myndin segir frá hópi hvalaskóðunarmanna sem lendir í hremmingum er skip þeirra bilar og þeim er bjargað um borð í hvalveiðiskip.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ