ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Kjallari Fritzls var dauðagildra

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:17 › 11. ágúst 2008

Jósef Fritzl, sem hélt dóttur sinni nauðugri í kjallaraholu í tæpan aldarfjórðung, fullyrti að hurðin að kjallaranum væri þannig úr garði gerð að hún opnaðist sjálfkrafa eftir fyrirfram ákveðinn tíma. Hurðina var einungis hægt að opna með fjarstýringu og sérfræðingar lögreglunnar í Austurríki eru slegnir eftir að hafa rannsakað hurðina og kjallarann nánar.

Ekki hefði verið nokkur vegur að hnika hurðinni innan frá ef Jósef hefði veikst, orðið fyrir slysi eða hefði af einhverjum ástæðum ekki verið fært að sækja kjallarann heim. Hurðin vegur um tvö tonn og var að auki hulin sjónum utan frá.

Rannsókn á kjallaranum hefur einnig leitt í ljós að allur frágangur vegna rafmagns var hroðvirknislegur. Einangrun rafmagnsvíra var verulega áfátt og afar lág spenna á rafmagninu.

Í skýrslu lögreglunnar segir að nokkuð víst megi telja að rafmagnið hafi farið af í kjallarum með nokkuð reglulegu millibili. Því hafi Elísabet Fritzl og börn hennar þrjú sem haldið var föngnum í kjallaranum vafalítið þurft að hírast þar í niðamyrkri svo dögum skipti þegar Jósef hugnaðist að fara til Tælands, eins og hann gerði oft og tíðum.

Einnig bendir lögreglan á að, í ljósi þess að Jósef lokaði alltaf dyrunum að kjallaranum þegar hann var þar niðri, hefði hann getað endað líf sitt þar ásamt börnum sínum ef straumurinn hefði farið af vegna sprungins vartappa. Hurðin var opnuð með rafmagni og vartappaskápurinn var utan við dyrnar. Því hefði Jósef ekki með nokkru móti getað opnað dyrnar og hefði ásamt börnum sínum verið fastur í eigin dauðagildru.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.