ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Í öndunarvél eftir harðan árekstur

Sigtryggur Ari Jóhannsson sigtryggur@dv.is
13:54 › 11. ágúst 2008
Áreksturinn var harður.

Áreksturinn var harður. DV-MYND MARÍA

Einum manni er nú haldið sofandi í öndunarvél eftir harðan árekstur tveggja bíla og rútu á Suðurlandsvegi í morgun. Læknir segir manninn vera þungt haldinn. Hinir tveir sem fluttir voru á sjúkrahús eru minna slasaðir.

Tildrög slyssins voru þau að ökumaður jeppa hugðist beygja til vinstri inn á Kirkjuferjuveg á milli Selfoss og Hveragerðis. Aftan á hann ók lítil sendibifreið með þeim afleiðingum að jeppinn skall framan á rútu sem kom úr gagnstæðri átt. Báðir ökumenn bílanna slösuðust, ásamt einum farþega í rútunni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.