Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur yfirheyrt bróður stúlku sem kærði fóstra sinn fyrir kynferðisofbeldi. Systkinin voru vistuð hjá hjónum í Kópavogi á grundvelli samnings við Félagsþjónustuna eftir að þau voru metin hæf til að taka börn í fóstur.
Þær upplýsingar hafa fengist hjá lögreglunni undanfarnar tvær vikur að rannsóknin sé á lokastigi. Hins vegar hefur málið enn ekki verið sent til ríkissaksóknara. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildarinnar, segir að hluti af skýringunni sé sumarfrí rannsóknarmanna en hann vonast til að rannsókn ljúki sem allra fyrst enda kynferðisbrotamál alltaf sett í sérstakan forgang.
Stúlkan sem lagði fram kæruna er nú sextán ára gömul en kærð brot voru framin þegar hún var átta til tólf ára, á árunum 2000 til 2004.
Yngri bróðir stúlkunnar var einnig vistaður á heimilinu. Hann var enn hjá hjónunum þegar systir hans greindi frá brotunum fyrr í sumar en hún hafði þá um nokkurn tíma búið annars staðar. Félagsþjónustan rifti í kjölfarið samningnum við hjónin og eru nú engin börn hjá þeim á vegum barnaverndaryfirvalda.
Björgvin vill hvorki játa því né neita hvort maðurinn sé grunaður um að hafa brotið gegn bróður stúlkunnar en staðfestir að hann hafi einnig verið yfirheyrður í tengslum við málið.
Fóstrinn er ekki á sakaskrá en afar strangar kröfur eru gerðar til þeirra sem fá að taka börn til sín í fóstur á vegum barnaverndaryfirvalda.
Eftir að málið er sent til ríkissaksóknara tekur hann ákvörðun um hvort gefin verður út ákæra, hvort afla þarf frekari gagna til að taka afstöðu eða hvort málið verður látið niður falla.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna