Spyr hverjir hagsmunir ráðherra séu
Svandís Svavarsdóttir ósátt með viðsnúning lögreglustjóra Mynd: DV.
„Við erum náttúrulega búin, í allri okkar pólitík, að berjast gegn þessum stöðum og þessari starfsemi,“ segir Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi VG í Reykjavík um nýútgefna umsögn lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um rekstur á nektarstaðnum Goldfinger.
Spyr hverjir hagsmunir ráðherra séu
Borgarstjórnarflokkur VG lýsti yfir vonbrigðum sínum með viðsnúning lögreglustjóra í afstöðu sinni gagnvart leyfisveitingu til Goldfinger í yfirlýsingu í dag. Lögreglustjóri hafi í fyrri umsögn sinni um Goldfinger lagst gegn leyfisveitingu, og segir Svandís að nú virðist hann hafa verið þvingaður til að breyta afstöðu sinni til málsins. En af hverjum þá?
„Ég gæti trúað því að það væri frekar dómsmálaráðherra umfram aðra. Er hann ekki búinn að úttala sig um að lögreglustjórinn hafi farið út fyrir sínar heimildir þarna? Og ég spyr bara hvaða hagsmuni dómsmálaráðherra hefur í þeim efnum,“ segir Svandís Svavarsdóttir aðspurð um málið í dag.
Hornsteinn kvennabaráttunnar
Hún segir að hjá hundraðdaga meirihlutanum hafi það verið samþykkt að beina því til lögreglustjóra að vera gegn stöðum sem þessum og veita þeim ekki leyfi.
„Þetta er einn af hornsteinum kvennabaráttunnar að berjast gegn starfsemi sem þessari og við höldum því áfram,“
„Sjálfstæðismenn hafa verið sammála okkur um að vera gegn þessari starfsemi, þegar málefnið hefur borið á góma í Reykjavík. En þeir hafa ávallt borið því fyrir sig að lagaumhverfið væri ekki nægjanlega sterkt til að hægt væri að koma í veg fyrir starfsemina,“ segir Svandís.
Vilja breyta lögunum
Segir Svandís að VG sé þeirrar skoðunar að þessum lögum beri þá einfaldlega að breyta.
„Og bendum þar með á breytingatillögu Atla Gíslasonar, sem hann lagði fram á síðasta þingi, um að fella út undanþáguákvæði í lögum um veitinga- og gistihús. Þar sem að nektardans er bannaður nema með undanþágum. Við viljum fella þetta undanþáguákvæði út svo sveitarfélög og höfuðborgin geti ráðið því sjálf hvort þau vilji hafa þessa starfsemi innan sinna vébanda eða ekki. Og við erum sammála, held ég, þverpólitískt að við viljum ekki svona starfsemi í Reykjavík.“
Aðspurð hvernig VG ætli að beita sér í málinu segir Svandís: „Við munum væntanlega leggja fram tillögu í borgarráði um að beina þeim eindregnu tilmælum til Alþingi Íslendinga að laga það sem laga þarf í þessum lögum til að koma í veg fyrir þessa starfsemi.“
Spurning um pólitískan vilja
„En fyrir utan það þá finnst okkur það vera spurning um pólitískan vilja í meirihlutanum í Reykjavík að standa í lappirnar í þessu máli. Því stundum þarf bara kjark til að standa á móti starfseminni og láta á það reyna fyrir dómstólum ef verða vill,“ segir Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi VG í samtali við dv.is.
Borgarstjórnarflokkur VG segir í yfirlýsingu sinni í dag að hann telji brýnt að koma í veg fyrir rekstur nektardansstaða sem hluta af baráttunni gegn hlutervingu kvenna, gegn kynbundnu ofbeldi og fyrir jafnrétti kynjanna. „Telji yfirvöld lögin ekki rúma að komið sé í veg fyrir rekstur sem sannanlega hagnast á að misnota eymd kvenna er nauðsynlegt að endurskoða lögin og tryggja að það sé unnt,“ segir í yfirlýsingu borgarstjórnarflokks VG.
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 22:20
Leatherface rokkaði á Clapton
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 22:17
Kjallari Fritzls var dauðagildra
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 22:09
Bróðir stúlkunnar einnig yfirheyrður
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 21:53
Uppsagnir á fasteignasölu
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 21:29
Rennsli eykst í Skaftá
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 21:23
Hörkuslagur í Grafarvogi
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 21:09
Hubble á hundarð þúsundasta hringnum
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 20:51
Star Trek leikur fær blessun Spock
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 20:16
Obama svara fyrir sig
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 19:55
Kristján Möller á norrænum sveitarstjónarráðherrafundi
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 19:44
Rússar neita vopnahléi
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 19:06
Þórunn boðar til fundar á Húsavík
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 18:54
Eldur í bíl á Miklubraut eftir árekstur
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 18:33
Gunnar Smári kominn í borgina
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 17:51
Rýkur úr bíl eftir árekstur á Miklubraut
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 17:14
Aflinn í júlí meiri en í fyrra
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 16:49
Forseti Georgíu þurfti að hlaupa í skjól
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 16:22
Norræna Húsið 40 ára
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 15:55
Góður dagur í kauphöllinni
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 15:42







