Barry George, andlega fatlaður maður sem sakaður var um að hafa skotið sjónvarpskonuna Jill Dando til bana árið 1999, hefur loksins verið sýknaður af verknaðinum í Bretlandi í dag.
Hinn 48 ára George neitaði því alltaf staðfastlega að hafa drepið Dando, sem var skotin til bana fyrir framan heimili sitt í Fulham í London árið 1999.
Hann var sýknaður í Old Baily í dag eftir að hafa eytt nærri átta árum í baráttunni fyrir sakleysi sínu. George, sem er andlega fatlaður flogaveikissjúklingur, var dæmdur fyrir morðið árið 2001.
Fyrstu áfrýjun hans var neitað, en seinni áfrýjun hans í nóvember á síðasta ári, varð til þess að málið var tekið upp á nýjan leik og réttað aftur.
Réttarhöldin hófust þann 9. júní síðastliðinn með því að dómarinn neitaði að taka til greina sönnunargagnið sem fékk George sakfelldan á sínum tíma. Var það ein ögn af púðurleif sem fannst í frakkavasa hans á sínum tíma.
Saksóknarar sökuðu George um að vera með frægt fólk á heilanum og að hann sæti fyrir þeim og væri sá eini sem kæmi til greina vegna morðsins.
Verjendur George sögðu hins vegar að George væri andlega fatlaður og það væri ekki í hans færi að framkvæma glæp sem þennan.
Barry George hafði setið í varðhaldi lögreglu í 8 ár áður en hann var fundinn saklaus í London í dag.
Verjandi hans var hæstánægður með niðurstöðuna en bætti þó við að nú væri ekki tíminn til að halda upp á hana.
„Barry George er saklaus maður sem setið hefur inni í átta ár fyrir glæp sem hann framdi ekki. Þessi átta ár hefðu getað nýst lögreglunni betur í leit að hinum raunverulega morðingja,“




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu