ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Össur á móti heildarmati

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:24 › 1. ágúst 2008
Össur kemur af fjöllum, vissi ekki af ákvörðun Þórunnar

Össur kemur af fjöllum, vissi ekki af ákvörðun Þórunnar DV-Mynd

Á meðan umsagnarferli álversins á Bakka stóð tók iðnaðarráðuneytið í tvö skipti afstöðu gegn því að álverið og virkjanir þess færu í heildarumhverfismat. Þetta staðfestir Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra í samtali við DV. Össur segist ekki hafa vitað af fyrirætlunum Þórunnar Sveinbjargardóttur umhverfisráðherra um að senda álverið í heildarmat fyrr en daginn sem þær voru kynntar.

„Mér var ekki gert viðvart um þessa niðurstöðu fyrr en daginn sem þetta kom,“ segir Össur, en hann er nýkominn til landsins eftir sumarleyfi erlendis.

Þrátt fyrir þetta útspil Þórunnar segir Össur samstöðu ríkja um álverið á bakka, bæði innan ríkisstjórnarinnar og flokksins. „Hvað Bakka varðar hef ég ekki orðið var við neinn verulegan ágreining innan flokksins. Þó er alveg ljóst að það er umhverfisvængur innan flokksins sem hefur vara á sér gagnvart allri stóriðju sökum útblásturs,“ segir Össur og bætir við að hann telji umhverfisráðherra hafa verið að vanda sig sem allra best í sinni ákvarðanatöku.

Sjálfstæðismenn hafa brugðist harkalega við fregnum af umhverfismati Þórunnar. Össur segist þó ekki telja að um fleyg í ríkisstjórnarsamstarfið sé að ræða.

„Ég get ímyndað mér að þetta veki gremju einstakra þingmanna sjálfstæðisflokksins. Það er þó af og frá að þetta sé einhver fleygur. Ráðherra styðst þarna algjörlega við lög. Þingmenn verða að gera ráð fyrir því að þær heimildir sem eru í lögum séu nýttar, þó iðnaðarráðuneytið hafi ekki talið þörf á því.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.