ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 4m/s E

Ólafur Ragnar Grímsson settur í embætti

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:21 › 1. ágúst 2008
Forseti Íslands og Dorrit Moussaieff skörtuðu sínu fegursta við athöfnina

Forseti Íslands og Dorrit Moussaieff skörtuðu sínu fegursta við athöfnina Mynd: DV - Gúndi

Herra Ólafur Ragnar Grímsson var í dag settur í embætti forseta Íslands við hátíðlega athöfn. Þetta er í fjórða sinn sem hann er settur í embætti forseta.

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, flutti hugvekju við upphaf athafnarinnar á Austurvelli klukkan 15 þar sem margmenni var samankomið í tilefni dagsins.

Innsetningaathöfnin hófst í Dómkirkjunni klukkan 15:30 að viðstöddum ráðherrum og ríkisstjórn, fyrrverandi forseta og æðstu embættismönnum þjóðarinnar.

Athöfn fór fram í Alþingishúsinu og hófst hún klukkan 16.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.