Mastersritgerðinni stolið úr bílnum

Toshiba Satelite tölvu var stolið frá Jun Morikawa. Þó ekki nákvæmlega þessari týpu.

Toshiba Satelite tölvu var stolið frá Jun Morikawa. Þó ekki nákvæmlega þessari týpu.

Föstudagur 1. ágúst 2008 kl 12:27

Höfundur: Sigurður Mikael Jónsson (mikael@dv.is)

„Þetta er hræðilegt, alveg hræðilegt. Þessi glæpamaður hefur rifið líf mitt og sál frá mér með þessum glæp,“ segir Jun Morikawa, nemandi í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, sem varð fyrir því á dögunum að brotist var inn í bifreið hans á lóð Háskóla Íslands og fartölvu hans stolið. Fartölvan inniheldur 150 blaðsíðna mastersritgerð hans.

Jun Morikawa, sem er frá Japan og hefur búið hérlendis í 7 ár, hafði lagt bifreið sinni fyrir utan Odda þann 18. júlí síðastliðinn um níuleytið að kvöldi til.

„Þegar ég hafði lokið erindum mínum í Odda snéri ég aftur út í bíl og mér til mikillar skelfingar sá ég að búið var að brjótast inn í bílinn minn og stela ferðatölvunni minni, sem inniheldur mastersriterðina mína og margar aðrar persónulegar upplýsingar sem eru mér ómetanlegar,“ segir Jun í samtali við dv.is.

Um er að ræða 150 blaðsíðna mastersritgerð sem Jun á að skila þann 5. september næstkomandi, en nú hefur óprúttinn innbrotsþjófur stefnt öllu í voða.

Örvæntingafullur
„Ég er þessa dagana að reyna að semja við leiðbeinanda minn hjá Háskólanum vegna málsins,“ segir Jun, sem jafnframt hefur tilkynnt málið til lögreglu. Hann hefur ekkert heyrt frá þeim síðan þá og er farinn að efast um að fá tölvuna aftur í hendurnar.

Tölvan er tveggja ára gömul Toshiba Satelite með serial númerinu 17261931Q, og biðlar Jun til þeirra sem einhverjar upplýsingar geti veitt um þetta atvik, eða til þess einstaklings sem hugsanlega hefur tölvuna undir höndum að stíga fram og skila henni.

„Ég lofa veglegum fundarlaunum hverjum þeim sem getur komið með gagnlegar upplýsingar sem leiða til þess að ég fái tölvuna aftur upp í hendurnar,“ segir Jun Morikawa, sem segist sakna tölvunnar, ritgerðarinnar og sinna persónulegu upplýsinga sárt.

Vonar að þjófurinn skili tölvunni
Fyrr í vikunni greindi DV frá sambærilegu atviki þegar Ragnar P. Steinsson, tónlistarmaður, varð fyrir því að fartölvu hans var stolið af heimili hans. Á tölvunni voru ómetanlegar myndir af dóttur hans og myndband af fæðingu hennar. Í DV í dag er greint frá því að tölvunni hafi verið skilað til Ragnars og vonar Jun Morikawa að þjófurinn sem tók tölvuna sína sjá einnig að sér.

Hver sá sem getur veitt upplýsingar um fartölvu Jun er beðinn að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 22:20

Leatherface rokkaði á Clapton

Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 22:17

Kjallari Fritzls var dauðagildra

Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 22:09

Bróðir stúlkunnar einnig yfirheyrður

Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 21:53

Uppsagnir á fasteignasölu

Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 21:29

Rennsli eykst í Skaftá

Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 21:23

Hörkuslagur í Grafarvogi

Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 21:09

Hubble á hundarð þúsundasta hringnum

Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 20:51

Star Trek leikur fær blessun Spock

Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 20:16

Obama svara fyrir sig

Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 19:55

Kristján Möller á norrænum sveitarstjónarráðherrafundi

Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 19:44

Rússar neita vopnahléi

Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 19:06

Þórunn boðar til fundar á Húsavík

Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 18:54

Eldur í bíl á Miklubraut eftir árekstur

Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 18:33

Gunnar Smári kominn í borgina

Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 17:51

Rýkur úr bíl eftir árekstur á Miklubraut

Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 17:14

Aflinn í júlí meiri en í fyrra

Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 16:49

Forseti Georgíu þurfti að hlaupa í skjól

Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 16:22

Norræna Húsið 40 ára

Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 15:55

Góður dagur í kauphöllinni

Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 15:42

Eldri kona finnst látin í Glerá