ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Fóstri enn til rannsóknar

14:17 › 1. ágúst 2008
  • Búist er við að rannsókn málsins ljúki mjög bráðlega.

    Búist er við að rannsókn málsins ljúki mjög bráðlega.DV/Heiða Helgadóttir

Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er á lokastigi vegna kynferðisbrota manns gegn stúlku sem hann hafði í fóstri á heimili sínu í Kópavogi. Stúlkan er nú sextán ára gömul en kærð brot voru framin þegar hún var átta til tólf ára, á árunum 2000 til 2004.

Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir rannsókn málsins langt komna og býst við að henni ljúki brátt.

Stúlkan var vistuð hjá manninum og konu hans á grundvelli samnings sem Félagsþjónustan í Kópavogi gerði við þau eftir að þau höfðu verið metin hæf til að taka börn í fóstur.

Yngri bróðir stúlkunnar var einnig vistaður á heimilinu. Hann var enn hjá hjónunum þegar systir hans greindi frá brotunum fyrr í sumar en hún hafði þá um nokkurn tíma búið annars staðar. Félagsþjónustan rifti í kjölfarið samningnum við hjónin og eru nú engin börn hjá þeim á vegum barnaverndaryfirvalda.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.