ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Er Samfylkingin klofin?

13:00 › 1. ágúst 2008
Össur er ekki sammála Þórunni og var ekki látinn vita af ákvörðun hennar

Össur er ekki sammála Þórunni og var ekki látinn vita af ákvörðun hennar DV-Mynd

Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, ógilti ákvörðun Skipulagsstofnunar og hefur ákveðið að heildstætt mat á umhverfisáhrifum vegna álvers á Bakka skuli fara fram. Þórunn hafnaði í apríl kröfu landverndar um að fella ákvörðun skipulagsstofnunar en hefur nú greinilega skipt umskoðun.

„Það eru átök inni í Samfylkingunni í orkunýtingu og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni“ segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Frjálslyndaflokksins. Kristinn segir það nauðsynlegt að halda áfram að virkja og spyr hvað ríkistjónin ætli að gera ef það verður hætt við Bakka?

Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að það sé ekkert í þessum úrskurði sem stöðvi framkvæmdir það sé einungis verið að safna saman öllum gögnum málsins og því munu allar upplýsingar liggja fyrir á sama tíma. Hann bætir viðað þessar framkvæmdir séu það langt komnar að það séu ekki til nein tæki til að stöðva framkvæmdir sem hafi verið ákveðnar af fyrri ríkistjórn.

DV.is greindi þá frá því fyrr í dag að Össur Skarphéðinsson vissi ekki af ákvörðun Þórunnar og telur að ekki hafi veri þörf á heildstæðu mati.

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru ekki ánægðir með þetta útspil Þórunnar og hefur Kristján Þór Júlísson lýst þessu sem fleyg í stjórnarsamstarfið og Jón Gunnarsson tekið í sama streng. „Ég ætla nú ekki að tjá mig um innanflokksmál Samfylkingarinnar að öðru leiti en því að mér finnst ekki allir gangi í takt í þessum málum“ segir Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann telur þó að þetta muni ekki stöðva framkvæmdir en finnst þetta flækja ferlið og tefja það.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.