Ekki óskastaða í önnum lögreglu
Lögreglan fer sér engu óðslega í máli mótmælendanna Mynd: DV.
„Þetta er ekki óskastaða okkar svo mikið er víst,“ segir Árni Þór Sigmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu um mótmæli Saving Iceland við álverið í Straumsvík nú þegar mesta ferðahelgi ársins er við það að ganga í garð.
„En við verðum alltaf að geta brugðist við hinu óvænta, hvað sem það er. Við vitum aldrei hvað gerist og þetta tiltekna mál má segja að við höfum vitað um að við gætum átt von á,“ segir Árni.
Hann Árni viðurkennir að tímasetning mótmælanna sé ekki sú allra besta í ljósi þeirra viðamiklu verkefna sem lögregluembættið stendur frammi fyrir í dag og um helgina. Auk þess að sinna umferðareftirliti þá sé lögreglan einnig með viðbúnað vegna embættistöku forseta Íslands síðar í dag.
Aðspurður hvort skortur sé á mannafla fyrir aðgerðir sem þessar segir Árni: „Við reynum bara að stýra mannsskapnum til. Það reynir bara á stjórnendur og lögreglumenn undir þessum kringumstæðum að skipuleggja sig við. Við ráðum þessu sjaldnast hvernig hittir á,“ segir Árni.
Kemur til greina að fjarlægja hliðið
Aðspurður um það nýjasta frá Straumsvík sagði Árni að fjórir menn hefðu hlekkjað sig við hlið Álversins en þeir og aðrir meðlimir Saving Iceland hefðu ekki verið fjarlægðir enn sem komið er.
„Við förum okkur að engu óðslega í þessum efnum og ástæða þess að þeir hafa ekki verið fjarlægðir er að við metum stöðuna svo að það séu líkur á að skaða mannskapinn við það að losa þá, þetta er þannig búnaður sem þeir eru með. Við erum búnir að gera ýmsar ráðstafanir til að bregðast við þessu. Við reiknum með því að geta, ef í harðbakkann slær, að losa hreinlega hliðið með mótmælendurna áfasta ef við þurfum á því að halda,“ segir Árni að lokum og bætir við að það sé stefna lögreglunnar að stofna fólkinu ekki í meiri hættu en það hefur þegar komið sér sjálft í.
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 22:20
Leatherface rokkaði á Clapton
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 22:17
Kjallari Fritzls var dauðagildra
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 22:09
Bróðir stúlkunnar einnig yfirheyrður
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 21:53
Uppsagnir á fasteignasölu
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 21:29
Rennsli eykst í Skaftá
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 21:23
Hörkuslagur í Grafarvogi
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 21:09
Hubble á hundarð þúsundasta hringnum
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 20:51
Star Trek leikur fær blessun Spock
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 20:16
Obama svara fyrir sig
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 19:55
Kristján Möller á norrænum sveitarstjónarráðherrafundi
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 19:44
Rússar neita vopnahléi
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 19:06
Þórunn boðar til fundar á Húsavík
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 18:54
Eldur í bíl á Miklubraut eftir árekstur
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 18:33
Gunnar Smári kominn í borgina
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 17:51
Rýkur úr bíl eftir árekstur á Miklubraut
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 17:14
Aflinn í júlí meiri en í fyrra
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 16:49
Forseti Georgíu þurfti að hlaupa í skjól
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 16:22
Norræna Húsið 40 ára
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 15:55
Góður dagur í kauphöllinni
Mánudagur 11. ágúst 2008 kl 15:42







