ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Bakkaklór Þórunnar gleður Steingrím

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:48 › 1. ágúst 2008
Ákvörðunin gleður Steingrím

Ákvörðunin gleður Steingrím

„Ég verð nú að segja að þetta gladdi mig,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna, um þá ákvörðun Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra að setja álver á Bakka í heildarumhverfismat. Steingrímur segir sjálfsagt að meta heildaráhrif stórframkvæmda á umhverfið og fyrir því hafi vinstri grænir barist. Ákvörðun Þórunnar er í trássi við mat skipulagsstofnunar sem taldi ekki þörf á að meta heildaráhrif álversins og virkjanamannvirkja á umhverfið.

Samfylkingin hefur legið undir ámæli undanfarið fyrir umhverfisstefnu sína, sem hefur í greinaskrifum flokksmanna verið kölluð Magra Ísland. Aðspurður hvort Þórunn sé með þessu síðasta útspili sínu að reyna að bjarga umhverfisstefnu flokksins segir Steingrímur: „Ég vil nú ekki ætla Þórunni að vera að nota þetta beinlínis þannig. Getum við ekki sagt að það kom sér ákaflega vel fyrir hana að geta hampað einhverju jákvæðu?“

Sjálfstæðismenn hafa brugðist harkalega við ákvörðun Þórunnar og kallaði Kristján Þór Júlíusson hana fleyg í ríkisstjórnarsamstarfið í samtali við visi.is. Steingrímur telur þó að stærri vandi blasi við ríkisstjórninni.

„Þó svona einstök ágreiningsmál geti valdið núningi og pirringi held ég þó að það sé stjórnarsamstarfinu hættulegra hvað ríkisstjórnin er slöpp,“ segir Steingrímur. Hann telur þó að það hjálpi síst til á jafnviðkvæmum tímum og nú að ágreiningsmál sem þetta komi upp.

hafsteinng@dv.is



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.