„Við munum halda áfram með þessi verkefni. Það eru skilaboðin sem menn þurfa að hlusta á,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, aðspurð um ákvörðun Þórunnar Sveinbjarnardóttur varðandi álverið á Bakka.Eins og áður hefur komið fram sneri umhverfisráðherra úrskurði Skipulagsstofnunar við og setti álverið í heildstætt umhverfismat.
Þorgerður segir viðbrögð þingmanna á borð við Kristjáns Þórs Júlíusarsonar við ákvörðun Þórunnar skiljanleg, en hann fullyrti að fleygur hefði verið rekinn í ríkisstjórnarsamstarfið. Sjálf vildi hún ekki taka svo djúpt í árinni.
Þorgerður segist ekki hafa verið látin vita af fyrirætlunum Þórunnar aðspurð hvort samráðs við sjálfstæðismenn hafi gætt við ákvarðanatökuna.
Þorgerður segir Þórunni þó fara með æðsta vald í málinu og ljóst sé að hún hafi lagaheimild til að snúa úrskurði Skipulagsstofnunar við. Ekki sé óeðlilegt að hún komist að þessari niðurstöðu. Þorgerður segist ekki hafa trú á því að málið hafi áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið.
„Það er ekkert í sögunni sem segir okkur annað en að við höfum náð að leysa málin,“ segir Þorgerður. „Svo lengi sem að þetta tefur ekki málið er ekki hægt að vera á móti þessu.“
DV.is hefur fjallað um málið í dag
Bakkaklór Þórunnar gleður Steingrím
ÖSSUR Á MÓTI HEILDARMATI
ER SAMFYLKINGIN KLOFIN





Páll Óskar: „Ísland á að draga sig útúr Eurovision“
Kona réðst að öryggisverði í 10-11
Á ótryggðum bíl vegna gjaldþrots án þess að vita það
Vatnskóngurinn opnar tískuskóla
„Hún var góð manneskja og góð vinkona“