ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

30 daga fangelsi fyrir falsað vegabréf

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:29 › 1. ágúst 2008
30 daga fangelsi fyrir vegabréfið

30 daga fangelsi fyrir vegabréfið Mynd: DV

Kostian Kristo, sem talinn er albanskur ríkisborgari, var í gær dæmdur í 30 daga fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir brot gegn lögum um útlendinga með því að hafa haft í vörslu sinni falsað vegabréf, sem lögregla fann við leit í farangri ákærða.

Reyndist vegabréfið stílað á mann að nafni Flamur Shkrepi.

Kristo játaði brot sitt afdráttarlaust og var dæmdur í 30 daga fangelsi, en með vísan til eðlis brotsins og hliðsjón af almennum varnaðaráhrifum refsinga var ákveðið að skilorðsbinda ekki dóminn í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.