ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Hárgreiðslustofuþema á Hinsegin dögum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:30 › 31. júlí 2008
Skjöldur Eyfjörð hefur ekki áhyggjur af sprengjuhótun

Skjöldur Eyfjörð hefur ekki áhyggjur af sprengjuhótun Mynd: DV - Karl Petersson

Skjöldur Eyfjörð er þessa dagana í óðaönn að undirbúa sig fyrir hina árlegu Gay Pride göngu niður Laugarveginn og segir hann að mikið verði um dýrðir að þessu sinni sem endranær.

„Ég og stofan sem ég á ætlum að verða með eitthvað brjálæðis geim niður Laugarveginn,“ segir Skjöldur þegar DV náði tali af honum. Hann segir aðspurður hvert þemað sé að þessu sinni að það sé leyndarmál. „En ég get allavega sagt að einhverskonar hárgreiðslustofa mun fara niður Laugarveginn.“

Skjöldur segist ennfremur að hann hafi ekki miklar áhyggjur af sprengjuhótuninni sem fréttastofu Stöðvar 2 barst í gær og var beint að Gay Pride göngunni.

„Í raun og veru hef ég allavega ekki áhyggjur, nei. Í fyrsta lagi finnst mér mjög skrítið að fréttastofunni hafi borist þetta bréf en ekki Gay Pride, því fréttastofan hefur ekkert með Gay Pride að gera. Þannig að ég held að þetta sé meira að einhver vilji koma fréttum í blöðin. Ef það er einhver alvara í þessu þá finnst mér það eiginlega bara pínu sorglegt og pínu fyndið.“

„Það skrýtna við þetta er að það stendur í þessu bréfi að samfélag samkynhneigðra sé að dreifa AIDS sem er eiginlega mjög kaldhæðnislegt af því það eru eiginlega bara gagnkynhneigðar konur sem eru að smitast í dag, ef litið er til að mynda bara til Afríku. Þetta hefur ekkert með samkynhneigð að gera, heldur snýst þetta um að stunda öruggt kynlíf. Þannig að alhæfingar sem þessar eru vart á rökum reistar,“ segir Skjöldur og bætir við að honum þyki leiðinlegt að þetta bréf hafi komið en fullyrðir að hann sé ekki hræddur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?