ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

„Þessi þáttur snérist bara upp í vitleysu"

21:39 › 30. júlí 2008
Guðni Ágústsson. Segir sér hafa ofboðið orðfæri Sverris Stormsker

Guðni Ágústsson. Segir sér hafa ofboðið orðfæri Sverris Stormsker Mynd: DV - SAJ

„Ég taldi mig hafa annað að gera í sólskininu en að sitja í þessu karpi“, segir Guðni Ágústsson sem fyrr í dag yfirgaf spjallþátt Sverris Stormsker á Útvarpi Sögu eftir að hafa misboðið orðfæri útvarpsmannsins.

Hann segir ástæður þess að hann rauk á dyr ekki hafa verið þær að Sverrir hafi verið með dónaskap við sig en hann hafi hinsvegar látið ýmis ummæli falla um menn og málefni sem Guðni hafi ekki viljað taka þátt í.

„Sverrir bað mig um að koma í þáttinn að spjalla um daginn og veginn. Og ég talaði nú við hann í klukkutíma um hin ýmsu málefni. En ég hef nú ekki vanið mig á það að tala illa um menn eða hlusta á miklar umræður um heimsku þeirra, gáfur eða að þeir séu fífl. Þannig að fyrir rest fannst mér ég hreinlega hafa annað að gera en að sitja í þessu samtali, svo ég kvaddi hann bara og fór.“

Guðni segir ekkert sérstakt málefni hafa orðið til þess að hann fékk nóg, þó fyrr í dag hafi Sverrir gefið það í skyn að skoðanir sínar á landbúnaðarmálum hefðu ef til vill fyllt mælinn. Guðni segir svo ekki hafa verið.

„Við töluðum um alla heima og geima áður en kom að landbúnaðarmálum. Þetta var bara þannig orðbragð að ég kann ekkert við það. Svo vissi hann alla hluti og hafði sínar ræður uppi við þannig að ég skipti engu máli í þessum þætti.“

Guðni segir Sverri vera færari við aðra hluti en að hafa uppi svona orðbragð og umræður í útvarpi.

„Þessi þáttur snérist bara upp í vitleysu þannig að ég þurfti ekkert að sitja þarna lengur. Það er nú einu sinni þannig að ef maður kemur á bæ og sé þar skapvonska og leiðindi með umræðu sem maður nennir ekki að taka þátt í, þá auðvitað drekkur maður bara sinn kaffibolla og fer.“

Guðni segist ennfremur vera búinn að gleyma þessu núna en viðurkennir að hafa aldrei verið í þætti sem þessum áður, þrátt fyrir að hafa ýmislegt reynt.

„Ég er tilbúinn að rífast og rökræða, en þetta voru einhver allt önnur efnistök en ég hef þekkt fyrr eða síðar,“ segir Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokkinn um samskipti sín við Sverri Stormsker á Úvarpi Sögu í dag.

Sjá einnig:
Guðni rauk á dyr hjá Stormsker



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.