ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Guðni rauk á dyr hjá Stormsker

17:59 › 30. júlí 2008
Sverrir Stormsker furðar sig á Guðna

Sverrir Stormsker furðar sig á Guðna Mynd: DV

„Þetta hefur aldrei gerst áður, hann bara rauk á dyr,“ segir tónlistar- og útvarpsmaðurinn Sverrir Stormsker sem fékk Guðna Ágústsson til sín í viðtal á Útvarpi Sögu nú fyrir stundu.

„Ég var bara að spyrja hann og leggja fyrir hann tölulegar staðreyndir um það sem á að vera hans sérsvið, það er að segja landbúnaðarmál. Hans ær og kýr. Eitthvað mislíka honum það og rauk á dyr. Vitandi það hversu stóran þátt hann hefur átt í því að íslenskir neytendur eru að borga fúlgu fjár í þetta skrímsli sem íslenskur landbúnaður er,“ segir Sverrir Stormsker um uppákomuna í beinni útsendingu með formanni Framsóknarflokksins.

„Hann neitaði mér meira segja um mynd af okkur saman eins og er nú venjan hjá okkur hérna að loknum viðtölum,“

Aðspurður sagði Sverrir að Guðni hefði nú ekki látið nein ljót orð falla en aðeins tilkynnt það ítrekað að viðtalinu væri lokið. „Og það er voðalega skrítið af manni sem er að slást inni á þingi og ætti að geta svarað fyrir sig eins og maður en ekki hlaupa út úr viðtali eins og smákrakki með kúkinn í buxunum,“ bætir Sverrir við.

„Það fór hugsanlega líka fyrir brjóstið á honum að ég sagði að hann væri sveitamaður, en mér finnst skrítið af Framsóknarmanni að skammast sín fyrir að vera sveitamaður.“

„Þetta var sérkennileg uppákoma þó ekki sé meira sagt og ég vona að þetta komi ekki fyrir aftur,“ segir Sverrir að lokum þegar dv.is náði í hann strax að þættinum loknum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?