ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Gibson gekk illa í golfi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:29 › 28. júlí 2008
Gibson golfar á Íslandi

Gibson golfar á Íslandi DV-Mynd/Ásgeir M. Einarsson

Stórleikarinn, leikstjórinn og golfarinn Mel Gibson átti vondan dag á golfvellinum við Urriðaholt á sunnudaginn. Þar sló hann meðal annars út í röffið. Leikarinn hefur farið víða um helgina en það var enginn annar en tónlistarmaðurinn Hafþór Ólafsson, annar liðsmanna Súkkats, sem eldaði kvöldverð fyrir ástralska ofurleikarann á laugardagskvöldinu.

Ástralski stórleikarinn Mel Gibson, sem meðal annars hlaut óskarsverðlaun fyrir leikstjórn stórmyndarinnar Braveheart, fór í golf á sunnudaginn og gekk nokkuð illa. Þá lék hann átján holur á Urriðavellinum í Heiðmörk en sá völlur er talinn sá glæsilegasti hér á landi. Með Gibson í för voru synir hans tveir en þeir fengu eigin golfvagn til þess að fylgja föður sínum eftir. Þegar ljósmyndari DV kom á svæðið gekk Gibson illa, hann skaut af vellinum og út í röffið, eins og það er kallað þegar golfarar skjóta út fyrir brautina. Eftir nokkrar misheppnaðar sveiflur gafst hann upp og hélt á brott ásamt fylgdarliði.

Allt um Íslandsheimsókn Stórleikarans mel Gibson í DV í dag



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.