ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Apasvín fæddist í Kína

15:50 › 25. júlí 2008
Hvað í ósköpunum er þetta eiginlega?

Hvað í ósköpunum er þetta eiginlega?

Þorpsbúar í Fengzhang í Kína flykktust að heimili bóndans Feng Changlin þegar sögur fór að ganga í þorpinu um að ansi sérkennilegur grís hefði komið þar í heiminn.

Það sem mætti þorpsbúunum þegar þeir mættu á svæðið vakti talsverðan hrylling viðstaddra enda var grísinn ófrýnilegur svo ekki sé meira sagt. Changlin segir grísinn vera eins og blöndu af svíni og apa. „Skepnan er ógeðsleg. Það mun enginn vilja kaupa hana, og hún hræðir fjölskyldumeðlimi,“ sagði Changlin í dagblaðinu Oriental Today.

Grísinn skartar tveimur þunnum vörum, litlu nefi og tveimur stórum augum. Afturfætur hans eru mun lengri en framfæturnir og verður hann því að hoppa í stað þess að ganga.

Eiginkona Changlin segir að apagrísinn sé einn af fimm nýfæddum grislingum sem níu ára gömul gylta þeirra kom í heiminn á dögunum.

„Ég vissi ekki hvað þetta var og viðurkenni fúslega að ég var dauðhrædd við hvað sem þetta er,“ er haft eftir eiginkonu Changlin. Hún segir ennfremur að sonur þeirra hjóna sé mjög hrifinn af hinum undarlega grís og harðneitar að leyfa þeim að losa sig við hann.

Nágrannar og aðrir þorpsbúar hafa hvatt hjónin til að halda apagrísinum til að sjá hvernig hann þroskast.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?