Starfsemi nemendafélaga framhaldsskólanna líður verulega fyrir samdrátt meðal fyrirtækja. Tekjustofnar félaganna eru einkum þrír; félagsgjöld, auglýsingasala og fastir samningar við stóra bakhjarla. Þegar fyrirtæki draga saman seglin er hætt við að tekjur félaganna skerðist og auglýsendum og bakhjörlum fækki.
Nemendafélögin standa mörg hver fyrir útgáfustarfsemi, leik- og söngviðburðum og ýmiss konar skemmtun annarri. Starfsemi stærstu félaganna veltir allt að tuttugu milljónum árlega. Forkólfar félaganna sem DV náði tali af voru sammála um að mikill missir væri ef starf þeirra þyrfti undan að láta, enda stígi margt hæfileikafólk sín fyrstu skref á vettvangi félagsstarfs í framhaldsskólum.
Áki Sveinsson, forstöðumaður markaðsmála Glitnis, segir vandræði nemendafélaganna ekki koma sér mikið á óvart. „Það kemur mér ekkert á óvart að það sé einhver niðurskurður í þessu, að fólk haldi að sér höndum með að styrkja nemendafélög.“
Allt um málið í DV í dag.





Opnar World Class í skugga deilna
Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“