„Þessi töf er tilkomin vegna atviksins í dag þegar sprakk á hjólbörðum vélarinnar sem var að koma frá London,“ segir Lára Ómarsdóttir, upplýsingafulltrúi Iceland Express.
116 farþegar bíða nú eftir að koma til Íslands frá Stansted flugvelli í London en miklar tafir hafa orðið á fluginu vegna atviksins í dag þegar sprakk á tveimur hjólbörðum MB-90/30 farþegaþotunnar sem var að koma frá London. 148 farþegar voru um borð í vélinni en í þann mund sem vélin nam staðar sprakk á öðru afturhjóli hennar.
Óhappið hefur orðið þess valdandi að gríðarleg seinkun er á flugi til og frá London með Iceland Express en hundrað farþegar áttu að fara með vélinni frá Keflavíkurflugvelli í dag. Lára segir að þegar verið var að vinna við að skipta um hjólbarða í dag hafi komið í ljós frekari skemmdir á hjólabúnaðinum.
Samkvæmt upplýsingum DV eru margir farþeganna í London ósáttir með töfina en margir heyrðu ekki af henni fyrr en þeir voru komnir út á flugvöll. Lára segist harma þær tafir sem orðið hafa en vélin átti upphaflega að fara í loftið klukkan 20.30 frá London. Brottförinni var síðan seinkað til 23.45 en enn og aftur varð seinkun og eins og staðan er nú er áætlað að vélin fari ekki í loftið fyrr en 04:15 í nótt og því margir Íslendingar sem þurfa að verja drjugum hluta nætur á Stansted flugvelli.





Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir
Náðu að flýja meðan heimilið logaði