Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
11:51 › 20. júní 2008
Á myndum frá Phoenix marsfarinu sem sent var til Mars má sjá vott af ljósu efni sem gefur til kynna að hugsanlega sé um frosið vatn að ræða.
Í fyrstu voru vísindamenn ekki vissir hvort um frosið vatn væri að ræða eða salt en þegar efnið gufaði upp stuttu eftir að það var berskjaldað var allur vafi tekinn af og ljóst að um vatn var að ræða. Phoenix marsfarið er ætlað að athuga hvort heimskautasvæði Mars geti verið byggilegt og ýtir þessi fundur undir það.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi