Þrjátíu og níu fundir hafa verið haldnir í borgarstjórn það sem af er kjörtímabili. Aðeins einn borgarfulltrúi hefur mætt á þá alla en það er Hanna Birna Kristjánsdóttir. Flokksbræður hennar, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Gísli Marteinn Baldursson, státa af 95 prósenta mætingu. Borgarfulltrúar Samfylkingar, Dagur B. Eggertsson og Björk Vilhelmsdóttir, hafa um 80 prósenta mætingu.
Nú er hálfnað eitt stormasamasta kjörtímabil í sögu Reykjavíkur, en frá því í sveitarstjórnarkosningunum í maí fyrir tveimur árum hafa þrír meirihlutar verið myndaðir í borgarstjórn Reykjavíkur og allir flokkar sem eiga sæti í borgarstjórninni setið í meirihluta á þessum tíma. Síðan meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks tók við völdum í borginni, hafa 39 fundir verið haldnir í borgarstjórn Reykjavíkur.
DV tók saman mætingu og ástundun kjörinna borgarfulltrúa allra flokka á borgarstjórnarfundi, samkvæmt fundargerðum borgarstjórnar sem birtar eru á vef Reykjavíkurborgar. Mætingin miðast við það hverjir voru viðstaddir við upphaf hvers borgarstjórnarfundar.
Fimmtán borgarfulltrúar eiga fast sæti í borgarstjórn sem fundar hálfsmánaðarlega.
Sjálfstæðismenn mæta betur
Aðeins einn borgarfulltrúi getur státað af 100 prósent mætingu, en það er Hanna Birna Kristjánsdóttir, forseti borgarstjórnar. Gísli Marteinn Baldursson og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson eru með næstbestu mætinguna, eða 37 fundi af 39 fundum, eða um 95 prósent mætingu. Af þeim borgarfulltrúum sem hafa setið allt kjörtímabilið eru Björk Vilhelmsdóttir og Dagur B. Eggertsson, Samfylkingu, með lökustu hlutfallslegu mætingu á fundi, eða um 79 prósent mætingu.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa mætt mest á fundi borgarstjórnarinnar, en Svandís Svavarsdóttir hefur bestu mætinguna af fulltrúum minnihlutans. Til gamans má geta þess að í flestum framhaldsskólum er 85 prósent mæting, lágmarksástundun til þess að nemendur geti staðist próf. Þegar borgarfulltrúar forfallast af borgarstjórnarfundum kalla þeir inn varamenn sína og hefur Margrét Sverrisdóttir sótt flesta fundi af varaborgarfulltrúum, en hún sat í stað Ólafs F. Magnússonar á 17 fundum á meðan hann var í veikindaleyfi.
Forgangsatriði að mæta á fundi
Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir það vera klárt mál að borgarfulltrúar eigi almennt að mæta á fundi. „Þeir geta hins vegar haft margar löggildar afsakanir og ég geri fastlega ráð fyrir því að menn séu hreinlega ekki að skrópa. Það þarf hins vegar að skoða hvaða afsökun hver borgarfulltrúi fyrir sig hefur.“
Björk Vilhelmsdóttir bendir á að borgarfulltrúar víki gjarnan af fundum til þess að hleypa varaborgarfulltrúum að þegar fjallað er um mál sem tengjast þeim fagnefndum sem þeir eiga sæti í. „Það er ekki alveg marktækt að mínu mati að miða bara við það hverjir eru í upphafi fundar, enda eru mannabreytingar á fundum hjá okkur,“ segir hún. „Það er algjört forgangsatriði hjá okkur að mæta á borgarstjórnarfundi og ég man í fljótu bragði aðeins eftir tveimur fundum þar sem ég var fjarverandi vegna veikinda.“
Svona mæta þau:
Björk Vilhelmsdóttir: 80 prósent
Gísli Marteinn Baldursson: 95 prósent
Hanna Birna Kristjánsdóttir: 100 prósent
Jórunn Frímannsdóttir: 85 prósent
Júlíus Vífill Ingvarsson: 85 prósent
Kjartan Magnússon: 89 prósent
Dagur B. Eggertsson: 80 prósent
Svandís Svavarsdóttir: 89 prósent
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson: 95 prósent
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir: 82 prósent
Björn Ingi Hrafnsson: 85 prósent
Ólafur F. Magnússon hefur sótt 17 fundi en verið í veikindaleyfi.
Oddný Sturludóttir tók sæti Stefáns Jóns Hafstein og hefur síðan sótt 30 fundi






Nóg að gera hjá lögreglunni
Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“