ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.6° 3m/s ESE

Bókaður út árið

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:21 › 20. mars 2008
  • None

Páll Óskar Hjáltýsson var sigursæll á Íslensku tónlistarverðlaunum og hefur aldrei verið vinsælli. Allt fyrir ástina hefur selst í platínu og Páll Óskar er hættur að taka við pöntunum þetta árið. Palli undirbýr tvöfalda safnplötu og afmælistónleika í haust. Hann er fullur þakklætis og er sáttur með lífið.

„Það var fyrst og fremst rosalegt þakklæti sem ég upplifði,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson um þá tilfinningu sem hann upplifði þegar hann var valinn besti söngvarinn á Íslensku tónlistarverðlaununum í þriðjudaginn var. „Ég fékk þessi verðlaun líka árið 1995 og ég er mjög þakklátur fyrir að vera hérna ennþá 12 árum síðar í jafn óútreiknanlegum bransa og tónlistin er,“ en Palli var einnig valinn vinsælasti tónlistarmaður í netkosningu auk þess sem hann hlaut netverðlaun tonlist.is. Í helgarblaði DV má lesa nánar um Pál Óskar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.