Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Freyju páskaegg án mjólkur er besta páskaeggið á markaðnum í dag samkvæmt matgæðingum og sælkerum DV. DV birtir í dag niðurstöður gæðaprófunar á páskaeggjum en Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, Nanna Rögnvaldardóttir, matgæðingur, og Úlfar Finnbjörnsson, kokkur, lögðu mat á átta gerðir páskaeggja.
Mjólkurlaust páskaegg frá Freyju þótti besta eggið að mati smakkara DV. Dómnefnd var Nanna Rögnvaldsdóttir matgæðingur og höfundur Matreiðslubókar Nönnu, Úlfar Finnbjörnsson kokkur og fulltrúi DV og Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. Fengin voru átta páskaegg frá Góu, Freyju og Nóa Siríus. Meðal þeirra voru Ríspáskaegg, Lakkríspáskaegg og mjólkur- og sykurlaus páskaegg.
Meira um könnunina í DV í dag.






Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“
Landlæknir vill fjarlægja alla PIP brjóstapúða