Einn mótmælanna fyrir framan ráðherrabústaðinn í morgun var kýldur af lögreglu þar sem hann lá í jörðinni. Þrír lögreglumenn voru yfir honum og sá blaðamaður DV þegar einn lögreglumaðurinn kýldi hann í andlitið. Lögregla hrinti einnig ljósmyndara DV í burtu þegar henn reyndi að ná ljósmyndum og reif í hálsmál blaðamanns og ýtti honum í burtu þegar hann spurði lögregluna hversvegna mótmælandi hafði verið handtekinn.
Hópur mótmælenda sem kom saman fyrir framan ráðherrabústaðinn í morgun ætlaði að mynda mannlega keðju fyrir framan ráðherrabústaðinn og meina ríkisstjórninni inngöngu. Lögreglan var komin á staðinn þremur mínútum eftir að fólkið hafði byrjað að koma sér fyrir í stiga ráðherrabústaðarins. Mótmælendur voru í kringum 30 og var um svipaðann fjölda lögreglumanna að ræða. Lögreglan hrinti mótmælendum úr vegi og hélt þeim lokuðum af, við hlið stigans.
Lögreglan myndaði vegg til þess að koma í veg fyrir að mótmælendur gætu komist aftur upp í stigann. Lögreglan ýtti og þrýsti sér oft gegn hópi fólksins sem kvartaði oft yfir því að það væri að kremjast inni í þvögunni. Sá fyrsti sem var handtekinn var fastur á milli lögreglu og mótmælenda og þegar hann reyndi að komast út úr þvögunni, steig hann yfir línu og var handtekinn fyrir það. Lögreglan sagði honum ekki fyrir hvað hann væri handtekinn.
Seinna þegar blaðamaður reyndi að fá svar frá lögreglu, varðandi það hversvegna einstaklingurinn hafi verið handtekinn, fékk hann enginn svör. Eftir ítrekaðar tilraunir til þess að fá svar frá lögreglunni reif ein lögreglan í hann og hrinti honum í burtu. Seinna sagði lögregla blaðamanni DV að sá sem hafði verið handtekinn hafi óhlýðnast fyrirmælum lögreglu með því að stíga yfir gulan borða lögreglunnar, þegar hann reyndi að komast úr þvögunni.
Ljósmyndari DV lenti í því að lögregla hrinti honum harkalega frá þegar hann reyndi að ljósmynda atburðarrásina. Sá sem var seinna handtekinn hafði lagst í götuna fyrir framan lögreglubílinn til þess að koma í veg fyrir það sem hann taldi vera ólöglega handtöku. Þrír lögreglumenn beygðu sig yfir hann og sá blaðamaður DV eina löggu kýla hann í andlitið þar sem hann lá. Hann var síðar færður í handjárn og færður inn í lögreglubíl.
Fjöldi mótmælenda stökk á götuna í þeim tilgangi að fá þann handtekna lausan. Lögreglan beitti mikilli hörku við að koma mótmælendum af götunni. Drógu þá eftir jörðinni og hentu þeim á gangstéttina. Fólkið lét sér þó ekki segjast og hélt áfram að reyna að stöðva lögreglubílinn.
Þegar einn lá í jörðinni hvatti lögreglumaður sem stóð fyrir utan bílinn bílstjórann til þess að gefa í. Bíllinn þaut af stað og minnstu munaði að einn yrði undir. Þegar lögreglan var spurð hversvegna hún hefði hvatt til þess að gefið yrði í svaraði hún á þessa leið að sögn nokkurra mótmælenda: „Eruð þið ekki að biðja um að það verði keyrt yfir ykkur?“
Lögreglan tók tvo fána frá hópnum og gaf fólkinu þá ekki til baka þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir úr hópnum. DV barst þessi yfirlýsing frá þeim sem mótmæltu í morgun:
„Pólitísk aðgerð, 9.desember 2008, við Ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu:
Við, fólkið, komum í veg fyrir inngöngu inn í Ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu og stöðvum þar með áframhaldandi valdníðslu ráðamanna.
Peningar hafa stýrt fólki á kostnað réttinda þeirra og ráðamenn og þeirra klíkur hafa hagrætt fjármagni eftir eigin hagsmunum. Sú hagræðing hefur ekki skilað sér í réttlátu samfélagi, réttlátum heimi. Tími aðgerða er runninn upp, því réttlátt samfélag er ekki einungis mögulegt, heldur er það skylda okkar að berjast fyrir því!"







Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir
Náðu að flýja meðan heimilið logaði