43 prósent sögðust bera mikið traust til Sláturfélags Suðurlands en 19 prósent til ríkisstjórnarinnar. Mynd: DV
Fjármálaeftirlitið lítur minnst traust meðal almennings samkvæmt nýrri könnun sem Markaðs- og miðlarannsóknir ehf. (MMR) gerðu fyrir stuttu. Þar á eftir kemur Bankakerfið, Seðlabankinn og Alþingi. Þær stofnanir sem njóta mest trausts meðal almennings eru Háskóli Íslands, Fréttastofa Sjónvarpsins, Lögreglan og Háskólinn í Reykjavík.
Um og yfir 76 prósent aðspurðra segjast bera mikið traust til Háskóla Íslands, Fréttastofu Sjónvarps (RÚV) og Lögreglunnar. Háskólinn í Reykjavík nýtur trausts 64 prósent svarenda, samkvæmt könnun MMR.
Athygli vekur að mun fleiri segjast bera mikið traust til gamalgróinna fyrirtækja og vörumerkja en
helstu valdastofnana samfélagsins. Þannig eru 53 prósent sem segjast bera mikið traust til
Mjólkursamsölunnar, 43 prósent segjast bera mikið traust til Sláturfélags Suðurlands, 39 prósent segjast bera mikið traust til Bónuss og 34 prósent segjast bera mikið traust til Coca Cola. Þetta er svipaður fjöldi og kveðst treysta Landsvirkjun og Stéttarfélögunum, sem hvort um sig njóta mikils trausts hjá 37 prósent svarenda.
Sé litið til helstu valdastofnana samfélagsins þá eru 19 prósent sem bera mikið traust til Ríkisstjórnarinnar og 18 prósent sem bera mikið traust til Alþingis. Þetta er álíka fjöldi og kveðst bera mikið traust til VR og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Athygli vekur að heldur fleiri, eða 26 prósent, segjast bera mikið traust til Evrópusambandsins. Fjármálaeftirlitið, bankakerfið og Seðlabankinn eru þær stofnanir sem flestir segjast bera lítið traust til.
Þannig eru 80 prósent sem setjast bera lítið traust til Fjármálaeftirlitsins og bankakerfisins en 74 prósent segjast bera lítið traust til Seðlabankans. Ríkisstjórnin nýtur lítils trausts meðal 61 prósent svarenda, og Alþingi nýtur lítils trausts meðal 55 prósent svarenda.
Hvað varðar aðra aðila sem spurt var um þá vekur athygli að fleiri segjast bera lítið traust til þeirra en
segjast bera mikið traust til þeirra. Þannig eru 32 prósent sem bera lítið traust til Lífeyrissjóðanna en 31 prósent sem bera mikið traust til þeirra, 32 prósent segjast bera lítið traust til Evrópusambandsins en 26 prósent segjast bera mikið traust til þess, 31 prósent segjast bera lítið traust til fjölmiðlanna en 23 prósent segjast bera mikið traust þeirra, 34 prósent segjast bera lítið traust til VR en 18 prósent segjast bera mikið traust til þess og 39 prósent segjast bera lítið traust til Alþjóða gjaldeyrissjóðsins en 17 prósent segjast bera mikið traust til hans.
Þeir sem svöruðu könnun MMR voru 2.464 einstaklingar en þeir voru valdir með tilviljunaraðferð úr þjóðskrá. Könnunin var framkvæmd dagana 2 til 5. desember og fór hún fram í gegnum síma og netið.
Þátttakendur voru á aldrinum 18 til 67 ára.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
