Alasdair Darling: „Ég tek því þá sem svo að loforðið sem Landsbankinn gaf okkur um að hann fengi 200 milljónir punda í reiðufé sé einnig fyrir bí?“
Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfsfeðga, segir að sunnudaginn 5. október síðastliðinn hafi yfirmenn Seðlabankans, forsætisráherra og nánir aðstoðarmenn hans, vitað um tilboð breska fjármálaeftirlitsins um að færa Icesave-reikninga Landsbankans í breska lögsögu sunnudaginn 5. október. Hann segir að um þetta séu til bréflegar heimildir.
Siv Friðleifsdóttir, Framsóknarflokki, spurði Árna Mathiesen, fjármálaráðherra, hvort hann hefði vitað um slíkt tilboð breska fjármálaeftirlitsins gegn 200 milljóna punda fyrirgreiðslu í reiðufé.
Í skriflegu svari neitar Árni því að hafa vitað um slíkt tilboð en ber ekki brigður á að slíkt tilboð hafi verið til.
Fyrirspurn Sivjar tengist símtali sem Árni átti við Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta 7. október, en í samtalinu er vísað til 200 milljóna punda upphæðar sem báðir virðast kannast við. Eftirfarandi er brot úr samtalinu:
„AD: Ég tek því þá sem svo að loforðið sem Landsbankinn gaf okkur um að hann fengi 200 milljónir punda í reiðufé sé einnig fyrir bí?
ÁMM: Já, þeir fengu ekki það fé.
AD: Veistu, ég skil svo sem afstöðu þína. Þú verður að gera þér ljóst að orðspor þjóðar þinnar bíður hræðilegan hnekki.“
Í skriflegu svari til Sivjar kveðst Árni hafa talið að Darling hafi verið að vísa til fyrirgreiðslu sem Landsbankinn hefði farið fram á í Seðlabanka Íslands en ekki fengið.
Árni kveðst hafa talið þetta og tekur því ekki af öll tvímæli um hvað það var sem Darling vísaði til. Í svarinu segir hann að engin minnisblöð séu til sem tengist ofangreindu tilsvari Darlings.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
