ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.0° 9m/s E

Berglind Icey í raunveruleikaþætti (myndbönd)

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:30 › 8. desember 2008
Berglind Icey leikur í raunveruleikaþáttunum Cha$e

Berglind Icey leikur í raunveruleikaþáttunum Cha$e

Berglind „Icey“ Ólafsdóttir er fyrsti Íslendingurinn sem leikur í raunveruleikaþáttum vestanhafs en þættirnir heita Cha$e og eru sýndir bæði á netinu og á sjónvarpsstöðinni Sci-Fi. Berglind leikur einn af svokölluðum „Hunters“ eða veiðimönnum en þeir eru átta talsins í þættinum. Í hverjum þætti fá tíu þátttakendur tækifæri á því að vinna allt að fimmtíu þúsund dollara.

Það eina sem þeir þurfa að gera er að komast yfir fyrirfram ákveðið leiksvæði, sem getur verið stór og mikil yfirgefin höfn, leysa þrautir en fyrst og fremst eiga þátttakendurnir að forðast veiðimennina. Veiðimennirnir reyna allt hvað þeir geta til að „merkja“ þá sem taka þátt en með því er viðkomandi úr leik og getur ekki unnið sér inn neinn pening. Sá sem er fyrstur á ákveðið svæði á leiksvæðinu fær að eiga þá peninga sem hann fann í leiknum.

Hægt er að horfa á þættina á YouTube myndskeiðavefnum en þar sést Icey hlaupa á eftir einum af þátttakendunum. Hún er án efa fallegasti veiðimaðurinn en henni hefur samt sem áður ekkert gengið allt of vel að ná þeim sem taka þátt því af þeim tuttugu og tveimur sem veiðimennirnir hafa náð þá hefur Icey aðeins náð einum.

Fjórir þættir eru búnir af seríunni en fyrsti þátturinn fór í loftið í síðasta mánuði en áætlað er að serían verði sex þættir. Þættirnir hafa vakið mikla og góða athygli vestanhafs og því má búast við framhaldi á þessari seríu en óvíst er þó hvort Icey taki þátt á nýjan leik. Hún mun þó klára næstu tvo þætti.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.