ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.7° 4m/s SSW

Tveir á slysadeild eftir bruna í Reykjavík

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:08 › 6. desember 2008
Tveir voru fluttir á slysadeild eftir brunann í dag

Tveir voru fluttir á slysadeild eftir brunann í dag

Tveir voru fluttir á slysadeild eftir að eldur kom upp í blokk í Álftamýri 16 í Reykjavík um klukkan 13 í dag. Að sögn lögreglu kom tilkynning um að eldur væri á annari hæð hússins og var fyrsti bíll kominn eftir fimm mínútur.

Stigahúsið var fullt af reyk en ekki er vitað hvort íbúðir hafi skemmst vegna reyks. Búið er að reykræsta húsið og fóru þrír dælubílar, þrír sjúkrabílar og körfubíll á staðinn.

Lögreglan rannsakar nú vettvang en ekki er vitað hvernig eldurinn kom upp.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.