ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Trausti er talinn af

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:17 › 6. desember 2008
Fjöldi manns hefur leitað dögum saman að Trausta Gunnarssyni sem nú er talinn af.

Fjöldi manns hefur leitað dögum saman að Trausta Gunnarssyni sem nú er talinn af.

Um 200 manns viðsvegar að á landinu leituðu í dag án árangurs að Trausta Gunnarssyni sem týndist við rjúpnaveiðar á Skáldabúðaheiði þann 29. nóvember. Leitin bar engan árangur og er nú talið vonlaust að hinn týndi sé lífs. Samkvæmt upplýsingum lögreglu voru aðstæður til leitar góðar í morgun en versnuðu vegna snjómuggu eftir hádegi. Áhersla var lögð á leit á þeim svæðum sem upp komu eftir greiningu á þeirri leit sem þegar hafði farið fram. Göngumenn voru flestir í leitarhópnum í dag en einnig voru leitarmenn á hestum, fjórhjólum og torfæruhjólum. Einn maður slasaðist þegar hann datt og er talið að hann sé úlnliðsbrotinn. Formlegri leit hefur verið hætt en áfram verður fylgst með aðstæðum og farið til leitar eftir því sem þær þykja gefa tilefni til.

Engin von er talin til þess að Trausti geti verið á lífi. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú uppkomin börn. Aðstandendur hans vilja koma á framfæri þakklæti sínu til leitarmanna fyrir þeirra óeigingjörnu vinnu við erfiðar aðstæður.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.