ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Sími forsetans kostar fern árslaun

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:44 › 6. desember 2008
Á tali hjá forseta ÍSlands. Símakostnaðurinn er himinhár.

Á tali hjá forseta ÍSlands. Símakostnaðurinn er himinhár.

Símareikningur forsetaembættisins er hvorki meira né minna en 5,7 milljónir króna fyrstu tíu mánuði ársins. Þetta samsvarar meira en fernum árslaunum ef miðað er við lágmarkslaun. Alls er talað í símann fyrir 19 þúsund krónur á dag, alla daga ársins. Stöð 2 upplýsti þetta í kvöld.

Þá var einnig upplýst, samkvæmt upplýsingum frá forsetaembættinu, alls hefur embættið kostað skattgreiðendur 60 milljónir króna þá 10 mánuði sem liðnir eru af árinu.

Auk símareikningsins voru teknart myndir af Ólafi Ragnari fyrir 1,6 milljónir króna. Embættið tók leigubíla fyrir 1,4. milljón króna. Ferðalög innanlands eðhafa kostað 400 þúsund en ferðir forsetans til útlanda fela í sér kostnað upp á 9,6 milljónir króna. Hótelkosnaður í ferðunum er upp á rúmar 5 milljónir.
Risnufé kostaði þjóðina um 9 milljónir króna. Skreytingar á Bessastöðum og á skrifstofu forseta kostaði 450 þúsund og keyptar kaffiveitingar 777 þúsund. Loks nefnir Stöð 2 laun forsetans sem eru rúmar 1800 þúsund krónur á mánuði eða yfir 22 milljónir á ári.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.