„Ég var að boða til hertari aðgerða, fleiri aðgerða, það er það sem við vorum að gera,“ segir Hörður Torfason mótmælandi. Aðspurður um hvernig aðgerðir það eru segir Hörður: „Við ætlum að upplýsa það með svona klukkutíma fyrirvara í fjölmiðla. Núna erum við komin með aðstöðu svo þetta er allt að breytast, það má gera ráð fyrir spennandi tímum í vikunni. Strax á mánudag munum við hefjast handa og fara undirbúa aðgerðir, við ætlum að fá ráðamenn til að bregðast við.“
Hörður segir að ekki sé eggjakast og annað slíkt í undirbúningi. „Þetta eru friðsamleg mótmæli, ég stend aldrei fyrir svona eggjakasti og slíku. Ég hef verið í þessu í 33 ár og ég nota heilann, rök og festu.“
Í kringum þúsund manns komu á Austurvöll klukkan þrjú í dag að mótmæla að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Mótmælin fóru friðsamlega fram og ekki nein eggjaköst eða slíkt eins hefur verið síðustu laugardaga. Lögreglan var í viðbragðsstöðu á meðan mótmælin stóðu yfir eins og venja er til, að sögn lögreglumanns.
Gerður Kristný rithöfundur og Jón Heiðar Erlendsson ávörpuðu fundinn með ræðum. Yfirskrift fundarins í dag var „Breiðfylking gegn ástandinu“ og hélt Hörður Torfason stutta ræðu þegar Gerður og Jón voru búin að ljúka máli sínu.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning
Reykjavíkurborg dæmd til að greiða Frjálslyndum 6,7 milljónir