ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Árni langefstur sem versti bankamaðurinn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:50 › 6. desember 2008
  • Árni er versti bankamaður allra tíma samkvæmt Huffington Post

    Árni er versti bankamaður allra tíma samkvæmt Huffington Post

Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra er efstur í netkosningu um versta bankamann heimsins. Árni er með 33,86 % atkvæða en Alan Greenspan fyrrum seðlabankastjóri Bandaríkjanna er í öðru sæti með 19,24 % atkvæða.

Það er vefsíðan Huffington Post sem sem stendur að kosningunni sem var gerð eftir að grein Daniel Gross birtist í tímaritinu Newsweek sem fjallaði um sama viðfangsefni.

Í athugasemdakerfinu á síðunni eru margir sem vilja sjá, Hreiðar Má, Lárus Welding og Sigurð Einarsson tilnefnda sem versta bankamann heims í stað ráðherrans. Einn maður sem kallar sig Magnus Thor skrifar: „Davíð Oddson, seðlabankastjóri, er lang versti bankamaður fyrr og síðar.“

Hægt er að kjósa með því að klikka hér.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.