Skrýtnustu jólagjafirnar
Sumar jólagjafir hitta beint í mark, en aðrar eru beinlínis stórfurðulegar. Vikan fór á stúfana og spurði vegfarendur um skrýtnustu og óvenjulegustu jólagjafirnar og virtust allir luma á góðum sögum af jólagjöfum sem skáru sig úr!
Hanna Gunnarsdóttir: „Ég fékk skíði en það vantaði bindingar og annað sem tilheyrir svo þau voru bara inni í skáp þar til ég varð fullorðin. Þá held ég að ég hafi hent þeim eða eitthvað. Gjöfin var frá pabba og mömmu; við vorum mörg systkinin svo það gleymdist oft ýmislegt. Mér fannst skíðin samt voða flott og fór oft og horfði á þau!“
Anna og Heiða Jóhannsdætur: „Magnús, bróðir okkar, fékk einu sinni gjöf sem pakkað var inn í marga kassa, svipað og babúska. Hann þurfti að taka upp alla kassana, með alls konar bindingum og festingum og þetta var óskaplega dularfullt. Innst var gjöfin sem reyndist bara vera ein valhneta! Einu sinni fékk hann líka konfekt sem var búið að borða helminginn af. Báðar gjafirnar voru frá góðum vini hans og þær komu reyndar fleiri skrýtnar frá honum. Magnús tók þessu mjög vel ... og þetta með hnetuna var nú líka gott grín!“
Jónína H. Jónsdóttir: „Börnin mín hafði lengi langað í og suðað um að fá gæludýr og ein jólin fyrir nokkrum árum gáfu þau mér Irish Setter-hund. Ég er hins vegar ekkert hrifin af hundum og varð að sitja á honum stóra mínum! Ég vildi alls ekki hafa hund svo ég varð að skila honum.“
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir: „Kolbrún (Harðardóttir) gaf mér ferð á eyðieyju. Og það sem meira er, hún á eyjuna sjálf!,“ segir Ásta og þær hlæja báðar. Eyjan er Grímsey á Breiðafirði og Kolbrún segir Ástu ekki enn hafa þegið boðið, það sé svo mikið að gera hjá henni. „Ég má aldrei vera að neinu en nú bara skelli ég mér þangað. Þetta er paradís á jörðu, ekkert rafmagn eða neitt!,“ segir Ásta.
Tómas Davíð Ibsen Tómasson: „Ég var búinn að tala um það allan síðasta vetur að ég þyldi ekki tónlistarmanninn Jason Upton, sem flytur kristilega tónlist, og gettu með hverjum ég fékk geisladisk um jólin!!! Það er gaman að segja frá því að ég ætlaði alltaf að skila diskinum en gleymdi því. Svo fann ég hann í haust og þetta er bara ágætis diskur. Amma gaf mér hann, hún fær ekki að gefa mér neitt í ár,“ segir hann og hlær. „Ég get líka sagt frá skrýtnustu jólagjöf sem vinur minn hefur fengið; hann fékk karlmannsblúndunærbuxur frá mömmu sinni!“
Helga Lind Pálsdóttir: „Einu sinni ætlaði amma að kaupa föt á stelpuna sína. Ég var þrettán ára og hún gaf mér hrikalega ljótan, brúnan flauelssmekkskokk með stuttu pilsi. Ég held að hann hafi verið keyptur í Kolaportinu en hann var aldrei notaður. Þetta var örugglega hrikalegasta jólagjöf sem ég hef fengið!“
Natalie Hallett: „Mágur minn gaf mér stóra krukku með pistasíuhnetum. Ég var í megrun á þeim tíma en át hneturnar og þær voru góðar. Hann er bjáni en ég elska hann,“ segir hún hlæjandi.
Steve Hallett: „Einn sem ég kannast við gaf bróður sínum gjafakort fyrir tattúi í jólagjöf. Bróðirinn tók hann á orðinu og fékk sér þorsk á upphandleggsvöðvann!,“ segir Steve og hristir hausinn. „Skrýtnasta gjöfin mín var skyrta frá bróður mínum. Hann var að þvo og ég sagði við hann að þetta væri falleg skyrta. Það er gott að þér líst vel á hana því þetta er jólagjöfin þín, sagði hann þá og gaf mér hana á staðnum.“
Sveinbjörn Óskarsson: „Ég fékk loftkælingarrofa til að kveikja á loftkælingunni í bílnum hjá mér; það var rispa á gamla rofanum. Góður vinur minn gaf mér þessa gagnlegu gjöf í fyrra og ég var alsæll með hana. Þetta var alveg óvænt, mig langaði í þetta en hafði ekki vit á að biðja um það eða kaupa mér það sjálfur.“
Ingibjörg Gréta Gísladóttir: „Ég fékk Grand Marnier í sérstökum kassa frá fyrrverandi manninum mínum jólin sem ég var að skilja við hann. Hann gaf mér skilnaðarjólagjöf. Þetta var ekki rétt tegund; gjöfin frá honum hentaði mér ekki og ég gaf hana aftur!“ segir hún og skellihlær.
Ríkharður Pálsson: „Þegar ég var líklega um sjö ára aldurinn uppi í sveit, stal ég jólagjöfinni minni! Það átti að vera jólagjöf en ég fann hana nokkrum dögum fyrir jól og tók hana. Það var fíll á hjólum, sem ég dró með bandi og fór um allan bæinn. Þetta var í sveitinni, líklega árið 1937, um það leyti sem stríðið var að brjótast út. Ég hafði eiginlega aldrei fengið almennileg leikföng og ég lék mér svo mikið með hann að hann varð eiginlega strax ónýtur. Ég vissi ekkert að þetta átti að vera jólagjöf en fékk að vita það seinna, það átti að pakka honum inn og allt. Ég veit ekki hver ætlaði að gefa mér hann, það er leyndarmál enn í dag. Leyndarmál síðustu aldar,“ segir Ríkharður brosandi og rifjar upp hvernig jólaskrautið var heima hjá honum eitt árið. „Það var mjög vel gert Spitfire flugvélamódel úr pappa. Það var hengt efst í rjáfrið á baðstofunni og hitinn þar inni hreyfði það aðeins. Alltaf þegar ég var kominn upp í rúm horfði ég á flugvélina og hafði óskaplega gaman af.“
Marinó Thorlacius: „Ég var hjá ömmu og afa ein jólin og systir mín gaf mér bók eftir Hugleik Dagsson. Ég þurfti að fela hana eins og þetta væri klámblað eða eitthvað, því ég vildi ekki að afi og amma sæju þessa bók!“
Óvenjulegar jólagjafir!
Vikan spurðist víða fyrir og þegar fólk var innt eftir skrýtnustu jólagjöfum sínum í gegnum tíðina voru svörin oft hin ótrúlegustu. Hér á eftir fara nokkur dæmi:
• „Ég fékk fótboltaspil frá kærastanum mínum ... og hann var ekki að grínast!“
• „Ég gaf kærastanum mínum Cocoa Puffs-pakka í jólagjöf rétt áður en við hættum saman. Honum fannst það frekar súrt en mömmu hans fannst þetta mjög fyndið!“
• „Ég var ósátt þegar ég fékk leiðinlega stríðsbók í jólagjöf frá manninum sem síðar varð fyrrverandi eiginmaður minn.“
• „Snemma á níunda áratugnum fengum við systkinin hvert sinn tannkremstúbukreistarann frá frænda okkar. Þá var ég níu ára og hafði ekki svo mikil not fyrir slíkt. En í dag er ég viss um að kostagripurinn sá myndi sæma sér vel á baðhillunni ...“
• „Ég og maðurinn minn fengum í fyrra barnaútgáfuna af Gettu betur spilinu ... það var keypt í öðru sveitarfélagi og við keyrðum langar leiðir til að skipta því.“
• „Versta jólagjöf sem ég hef fengið var slátur. Mér finnst slátur vont.“
• „Bróðir vinkonu minnar fékk táfýlusprey frá systrum sínum ...“
• „Ég þekki fíkil sem fékk bókina „Hlauptu drengur, hlauptu“. Hún fjallar um fíkil sem snýr til betri vegar.“
• „Bróðir minn gaf mér kvefpillur sem hann keypti í Taílandi.“
• „Vinkona mín fékk hjálpartæki ástarlífsins frá kærastanum sínum. Pakkinn var undir trénu með öllum hinum og hún opnaði hann með fjölskyldunni sinni!“
Mánudagur 15. desember 2008 kl 22:27
Prestur og harðstjóri
Mánudagur 15. desember 2008 kl 20:18
Lögregla blandast í steggjun
Mánudagur 15. desember 2008 kl 19:46
Offita andlegt vandamál?
Mánudagur 15. desember 2008 kl 19:19
Komst í tölu lifenda á ný
Mánudagur 15. desember 2008 kl 18:55
Ljósmyndaði „draug“
Mánudagur 15. desember 2008 kl 18:30
Tom Jones ævintýrinu lokið
Mánudagur 15. desember 2008 kl 17:20
Besta sætið boðið upp
Mánudagur 15. desember 2008 kl 16:26
Peningamarkaðsmáli frestað
Mánudagur 15. desember 2008 kl 16:05
Gísli Marteinn kjaftstopp
Mánudagur 15. desember 2008 kl 15:38
Húsavíkurhangikjöt best
Mánudagur 15. desember 2008 kl 15:02
Kynþáttahatarar dæmdir fyrir morð
Mánudagur 15. desember 2008 kl 14:42
Jóhanna þarf að rassskella hina ráðherrana
Mánudagur 15. desember 2008 kl 14:28
Ginnt með gylliboðum
Mánudagur 15. desember 2008 kl 14:25
35 prósent á nagladekkjum
Mánudagur 15. desember 2008 kl 13:48
Kona lést af völdum reykeitrunar
Mánudagur 15. desember 2008 kl 13:20
Dæmdir fyrir aðild að Keilufellsmáli
Mánudagur 15. desember 2008 kl 13:14
Yfirlýsing frá blaðamönnum DV
Mánudagur 15. desember 2008 kl 13:07
Tveggja vikna laun í skattahækkanir
Mánudagur 15. desember 2008 kl 12:46
823 stöðvaðir - einn grunaður um ölvun
Mánudagur 15. desember 2008 kl 12:46







