Viðskiptaráðherrann Björgvin bíður eftir að rannsókn Fjármálaeftirlitsins ljúki áður en hann getur tjáð sig um málefni Stíms. Eftirlitið hefur rannsakað Stím í rúmt ár án niðurstöðu. Mynd: DV
„Mér er kunnugt um að Fjármálaeftirlitið hefur um skeið haft Stím til skoðunar. Ég tel rétt að Fjármálaeftirlitið ljúki þeirri rannsókn áður en ég tjái mig frekar um viðskipti félagsins við Glitni og önnur tengd félög,“ svaraði Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra þegar DV leitaði viðbragða hjá ráðherranum vegna Stím-málsins.
Rannsókn Fjármálaeftirlitsins á málefnum Stíms ehf. hefur verið ofurhæg en eftirlitið er búið að rannsaka málefni félagins í rétt rúmt ár. Það var í nóvember á síðasta ári sem þáverandi bankastjóri Glitnis, Lárus Welding, afhenti eftirlitinu gögn um Stím. Þá kom í ljós að viðskiptin væru ekki tilkynningaskyld, en lánveitingin væri enn í rannsókn.
DV kom upp um undarlega lánveitingu Glitnis til Stíms sem átti sér stað í nóvember á síðasta ári. Þá kom í ljós að útgerðarmaðurinn og Bolvíkingurinn Jakob Valgeir Flosason var skráður stjórnarformaður Stíms ehf. sem fékk rétt rúman nítján og hálfan milljarð að láni til kaupa á hlutum í Glitni og FL Group. Það var svo um síðustu helgi sem Jakob Valgeir upplýsti þjóðina um eignarhald á Stími en þar kom í ljós að félag stofnað af Glitni átti 32 prósent í Stími. Spurningar um innherjaviðskipti vöknuðu í kjölfarið.
Svo virðist sem Stím hafi verið nokkurs konar ruslakista Glitnis en bankinn seldi Stími bréf sín í FL Group á sama tíma og gengið féll. Aðeins nokkrum vikum eftir viðskiptin kom í ljós við ársuppgjör félagsins að FL Group tapaði 64 milljörðum árið 2007. Eftir það hríðlækkaði gengið þar til félagið fór í greiðsluþrot rétt eftir að Glitnir var þjóðnýttur.
Nánar í DV í dag.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna