ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Vorum skilin ein eftir í miðju hafi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:35 › 28. desember 2008
Hallgrímur segir að Ísland hafi verið skilið eftir í miðju hafi

Hallgrímur segir að Ísland hafi verið skilið eftir í miðju hafi

„Við vorum skilin eftir í miðju hafi fyrir þúsund árum, og enginn tók eftir okkur,“ segir Hallgrímur Helgason rithöfundur í stuttu myndskeiði sem hægt er að horfa á um borð í flugvél til Íslands. Þetta kemur fram á erlenda fréttamiðlinum,pittsburghlive.com.

Hallgrímur talar um svokallaðar myrku-aldir þegar Danir réðu yfir Íslandi, en skildu þá í grundvallaratriðum eftir í plágu með sjóræningjum, hungursneyð og spúandi eldfjöllum.

Nú eru tímarnir aðrir, Ísland kemst ekki úr sviðsljósinu. Á miðlinum segir að nú í haust fór landið í mikla efnahagslega lægð, þegar ríkisstjórnin keypti banka og þúsundir Íslendinga misstu vinnuna sem þakka má áhættusömum viðskiptum íslenskra fjármálamanna, og sumir segja, vegna klúðurslegu eftirliti ríkisstjórnarinnar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.