Morgunblaðið er enn á framfæri almennings þar sem ekki hafa fengist nýir hluthafar til að axla þá fjóra milljarða króna sem Árvakur, útgáfufélag blaðsins, hefur safnað upp í skuldum í góðæri undanfarinna ára. Ef reiknað er með að tapið í nóvember hafi verið 150 milljónir króna þarf hvert mannsbarn á Íslandi að greiða um 500 krónur með áskriftarblaðinu. Það þýðir að fjögurra manna fjölskylda borgar nú um 2.000 krónur fyrir að halda blaðinu úti.
Ríkisbankinn Glitnir er viðskiptabanki blaðsins en bankinn hefur falið núverandi stjórnendum Árvakurs, Einari Sigurðssyni framkvæmdastjóra og Þór Sigfýssyni stjórnarformanni, að setja saman nýjan hluthafahóp en núverandi hlutafé hefur verið fært niður í núll. Tapið af Árvakri undanfarið hefur verið talsvert á annað hundrað milljónir króna mánaðarlega og hefur ríkisbankinn lagt út fyrir því.
Árvakur gat ekki borgað út öll laun starfsmanna fyrr en langt var liðið á desembermánuð. Þá hljóp Glitnir undir bagga og hjó á hnútinn. Nú ríkir óvissa um það hver örlög blaðsins verða um áramót eða hvort milljarðar króna af almannafé verða afskrifaðar í þágu þeirra sem hafa rekið Árvakur í gífurlegu tapi undanfarin ár.
Morgunblaðið mun koma út á morgun ef marka má fréttavefinn mbl.is sem fjallar sérstaklega um væntanlega útgáfu.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna