Ríkisstjórn Ísraels hótar að senda þúsunda hermanna til Gaza, vegna árásannar þar síðustu daga. Ríkisstjórnin fundaði um málið í morgun og var niðurstaðan tímabundin herkvaðning. Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, segir að markmiðið sé að eyðileggja stoðir Hamas-samtakanna. Verkefnið geti þó tekið einhverja daga. Yfir 280 manns hafa látist á svæðinu, samkvæmt erlendum miðlum.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundaði einnig í gærkvöldi og lýsti yfir áhyggjur vegna ástandsins og hvatti til vopnahlés. Ráðið vill að veitt verði læknisaðstoð og nauðsynjar fluttar til íbúa á svæðinu.
Ísraelar segja að 110 flugskeytum hafi verið skotið á Gaza um helgina, mannfallið á Gaza í gær er það mesta á einum degi þar frá árinu 1967. Flestir þeirra látnu voru liðsmenn í öryggissveitum lögreglu Hamas hreyfingarinnar en samkvæmt fréttavef BBC hafa einnig konur og börn látist.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu