ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Bílvelta í Hrútafirði: Þrjár stúlkur lítið meiddar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:12 › 28. desember 2008
Tildrög slyssins eru ekki ljós að svo stöddu en engin hálka var á svæðinu

Tildrög slyssins eru ekki ljós að svo stöddu en engin hálka var á svæðinu

Bílvelta varð í grennd við, Hvalshöfða í Hrútafirði um sexleytið í kvöld. Þrjár stúlkur undir tvítugt voru í bílnum og voru þær fluttar á heilsugæslustöðin á Hvammstanga til aðhlynningar. Meiðsl þeirra reyndust ekki vera mikil að sögn lögreglunnar á Blönduósi.

Tildrög slyssins eru ekki ljós en talið er að ökumaðurinn hafi misst stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann valt niður brattan vegkant og endaði ofan í læk. Engin hálka var á svæðinu og er bifreiðin ónýt



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.