Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Af 41 hrossi hafa 21 drepist vegna salmonellusýkingar sem hefur geisað á stóði á Kjalarnesi. Sýkingin gerði fyrst vart við sig í byrjun vikunnar. Mörg hross eru ennþá mjög veik og eru horfurnar ekki góðar. Það mun skýrast á næstu tveimur sólarhringum hvort sýkingin nær að fella fleiri hross, sex hross eru nú sýkt.
Sýkingarinnar varð vart á sunnudag er dauður hestur fannst í hjörð sem var á útigangi við Kjalarnes. Strax var athugað með restina af hjörðinni og kom þá í ljós að hestarnir voru flestir veikir. Hrossin voru þá flutt í hús í Mosfellsbæ þar sem hlúð hefur verið að þeim síðan þá.
Uppruni sýkingarinnar er óljós en talið er að hrossin hafi sýkst af fóðri eða vatni.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir