ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Róleg nótt - líkamsárás á Húsavík

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:40 › 27. desember 2008
Grunaður um líkamsárás á Húsavík

Grunaður um líkamsárás á Húsavík

Nóttin var víðast hvar róleg í nótt samkvæmt lögregluembættum landsins. Mikið af fólki var að skemmta sér en fór allt friðsamlega fram. Í Vesturbæ Reykjavíkur var brotist inn á veitingastað og hárgreiðslustofu og stolið litlu magni af peningum, þá voru þrír teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík í nótt.

Maður á fertugsaldri gisti fangageymslu á Húsavík í nótt vegna gruns um líkamsárás. Málið er í rannsókn hjá lögreglunni á Húsavík en tekin var skýrsla af þeim grunaða í morgun og er hann nú frjáls ferða sinna. Fórnalambið gisti ekki á slysastofu og er lítilsháttar meiddur að sögn lögreglunnar.

Tveir gistu fangageymslur lögreglunnar á Suðurnesjum í nótt. Annar maðurinn fannst ofurölvi fyrir aftan skemmtistað við Hafnargötuna en hinn hvar handtekinn fyrir ölvun og óspektir og hafa brotið rúðu á veitingastað við Hafnargötuna. Annars var nóttin nokkuð róleg, samkvæmt dagbók lögreglu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.