ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Morðinginn vissi ekki af barni konu sinnar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:23 › 27. desember 2008
Bruce Pardo drap níu manns og svipti sjálfan sig svo lífi

Bruce Pardo drap níu manns og svipti sjálfan sig svo lífi

Bruce Pardo sem skaut níu manns á aðfangadag, var ekki búinn að eiga sjö daganna sæla fyrir verknaðinn. Hann missti vinnu sína sem rafmagnsverkfræðingur og hjónaband hans til tveggja ára lauk endanlega 18. desember. Pardo skuldaði konu sinni tíu þúsund dollara, missti hund sem honum þótti afar vænt um og fékk ekki rándýran giftingarhring til baka.

Nágrannar Pardos þekktu hann ekki vel en lýstu honum sem hljóðlátum manni. Sumir lýstu Pardo sem stórum manni sem var yfirleitt hress og ávallt í fylgd japanska Akita hundsins sem hann átti með konu sinni.

Pardo var líka sjálfboðalið sem sætavísir i í kirkjunni í bænum. „Þetta kemur öllum mjög á óvart sem þekktu hann," segir Jan Detanna, aðalsætavísirinn í kaþólsku kirkjunni Holy Redeemer í Montrose þar sem Pardo var sjálfboðaliði. "Stundum veit maður ekkert hvað er í gangi hjá fólki."

Níu manns lágu í valnum, þar á meðal ein átta ára gömul stúlka, eftir að Bruce Pardó hóf skothríð klæddur í jólasveinabúning í jólaveislu í Bandaríkjunum á aðfangadag. Á meðal fórnarlamba hans voru fyrrverandi eiginkona hans og foreldrar hennar.

Samkvæmt erlendum fréttum hófst skothríðin þegar átta ára stúlka opnaði dyrnar eftir að hafa heyrt bankað á þær. Fyrir framan hana stóð þá jólasveinn sem hélt á pakka. Gleði stúlkunnar reyndist þó skammvinn því maðurinn dró upp skammbyssu og skaut stúlkuna í andlitið. Hann gekk síðan inn í húsið og skaut á veislugesti, að því er virtist af handahófi, þar sem þeir reyndu að flýja. Talið er að átta hið minnsta hafi látist. Maðurinn lauk illvirkinu með því að kveikja í húsinu og skjóta sjálfan sig til bana.

Ekki hefur tekist að bera kennsl á þau níu lík sem fundust í rústunum. Þau höfðu nýlega skilið eftir að í ljós kom að konan átti barn frá fyrra sambandi, sem Pardo vissi ekki um.

Pardo var ekki á sakaskrá og vinir og ættingjar hans segja, að ekkert í fari hans hafi bent til þess að hann áformaði slíkan verknað.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.