Jónas Kristjánsson bloggari og ritstjóri segir að bókin um Ólaf Ragnar Grímsson sé versta jólabókin í ár. Hann gagnrýnir höfundinn, Guðjón Friðriksson, fyrir að láta nafn sitt undir sjálfsævisögu annars. „Eftir góðar bækur um Einar Benediktsson og fleiri er þunnt að skrifa nafn sitt undir sjálfsævisögu annars,“ segir Jónas á bloggsíðu sinni.
„Bókin átti að vera lofgerð um forustu forsetans í útrásinni. Við hrun hennar var bókin snarlega stytt um sextíu síður, myndir útrásarvíkinga minnkaðar, skipt um kápu. Fyrir bragðið missti bókin marks, varð að lélegri apólógíu fyrir pólitíkus, sem hefur fátt að kenna. Bókin hefði átt að fjalla um, hvernig æstur flokkspólitíkus varð á einni nóttu að útrásar-forstjóra. Og hvernig Davíð Oddsson varð antíkristur. “





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna