Í ár verður hægt að sprengja upp útrásarvíkingana og stjórnmálamennina í formi flugelda. Fjórar nýjar tertur eru í boði á flugeldamarkaði björgunarsveitanna sem mun hefjast á morgun, sunnudag. Víkingatertan, er skreytt með mynd af útrásarvíkingum landsins. Bankatertan, með bankamönnum, Stjórnmálatertan, með stjórnmálamönnum og Íslandstertan, með íslenskum almenningi.
Allar myndirnar eru teiknaðar af Halldóri Baldurssyni.
Flugeldamarkaðir björgunarsveitanna á 112 stöðum um allt land og sem fyrr er úrvalið mikið. Í tilkynningu frá björgunarsveitinni segir að í því ástandi sem nú ríkir er afar mikilvægt að styðja vel við bakið á björgunarsveitunum enda hefur útköllum fjölgað mikið undanfarin á og eru nú um 1500 á ári. Flugeldasalan er stærsta og um leið mikilvægasta fjáröflun björgunarsveitarinnar enda er kostnaðurinn mikill.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 






„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna